HomeBónus deildinBónus deild kvennaÁrmenningar semja við tvo leikmenn

Ármenningar semja við tvo leikmenn

Tveir af efnilegustu leikmönnum Ármanns hafa framlengt samninga sína við félagið til næstu tveggja ára og munu leika með meistaraflokki kvenna í efstu deild á komandi keppnistímabili. Þetta eru þær Brynja Benediktsdóttir og Rakel Sif Grétarsdóttir, sem báðar eru fæddar árið 2009, en þær hafa leikið með félaginu í mörg ár og þegar stigið sín fyrstu skref með meistaraflokki.

Miklar væntingar eru bundnar við áframhaldandi vöxt þeirra hjá uppeldisfélaginu, en Brynja var auk þess valin í U18 ára landslið Íslands fyrir verkefni sumarsins. Forráðamenn Ármanns lýsa yfir miklu stolti með árangur hennar og boða jafnframt fleiri fréttir af leikmannamálum meistaraflokka á næstu dögum.

Fréttir
- Auglýsing -