Körfuboltalið Ármanns lauk leik í fjórða sæti á hinu sterka Scania Cup um helgina eftir flotta frammistöðu. Liðið lék til undanúrslita gegn danska liðinu Viby þar sem Ármenningar máttu þola tap eftir hörkuleik. Viby fór alla leið og vann mótið í miklum spennuleik gegn Fryshuset, þar sem aðeins eitt stig skildi liðin að á lokasekúndunum.
Erik Bjarki Juto fór fyrir sínum mönnum og var valinn í úrvalslið mótsins (All Star) fyrir vikið. Hann var næststigahæsti leikmaður alls mótsins með glæsilegt meðaltal, eða 24,5 stig í leik. Fleiri leikmenn liðsins létu að sér kveða á tölfræðilistunum, en Bergur Jarl Ólafsson var sjöundi stigahæsti leikmaður mótsins og Stefan Nedeljkovic þrettándi stigahæsti.
Þrátt fyrir góðan árangur á vellinum er hópurinn nú fastur í Södertälje þar sem flugi þeirra heim til Íslands var aflýst. Leikmenn og þjálfarar bíða nú eftir nýju ferðaplani frá Icelandair svo hægt sé að koma strákunum heim eftir vel heppnaða en krefjandi mótstörn í Svíþjóð.
Ert þú með fréttir af Scania Cup? Sendu þær með mynd á [email protected].




