spot_img
HomeFréttirÁrmann meistari í 2. deild 11. flokks drengja

Ármann meistari í 2. deild 11. flokks drengja

Ármann varð um helgina meistari 2. deildar 11. flokks drengja eftir sigur gegn c liði Stjörnunnar í úrslitaleik á Meistaravöllum. Ármann leiddi allan leikinn og sigruðu mjög örugglega, 98-58. Sævar Loc Ba Huynh var valinn maður leiksins, en hann skilaði 16 stigum, 15 fráköstum, 5 stoðsendingum og 3 stolnum boltum.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af meisturunum ásamt þjálfara sínum Steinari Kaldal.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -