Alls 32 milljónum króna hefur verið úthlutað til 76 verkefna úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026.
Mennta- og barnamálaráðherra samþykkti úthlutunina að tillögu íþróttanefndar. Sjóðnum bárust 134 umsóknir upp á samtals 313 milljónir króna, sem sýnir að eftirspurnin eftir stuðningi er margföld á við það fjármagn sem var til skiptanna.
Af 76 styrkjum eru 4 sem rekja má til körfubolta og er upphæðin sem fer í þau verkefni 1.3 miljónir, eða um 4% af heildarupphæð styrkja.
Hér má sjá hvaða verkefni hlutu styrk
Styrkir til körfuknattleiksfélaga og upphæð
| Glímufélagið Ármann | Færanlegar körfuboltakörfur fyrir götubolta | 300.000 |
| Soffía Hjördís Ólafsdóttir | Búnaður til körfuboltaiðkunar barna í KR | 400.000 |
| Unglingaráð Körfuknattleiksdeildar Tindastóls | Boltar og boltageymslur | 300.000 |
| Stjarnan,körfuknattleiksdeild | Geðheilbrigði ungs fólks í gegnum körfuknattleik | 300.000 |




