spot_img
HomeNeðri deildir2. deild karlaÁrmann einum sigri frá sæti í fyrstu deildinni eftir öruggan sigur á...

Ármann einum sigri frá sæti í fyrstu deildinni eftir öruggan sigur á Þrótti

Úrslitaeinvígi annarar deildar karla á milli Ármanns og Þrótts Vogum rúllaði af stað í Kennó í kvöld.

Ármann hafði áður slegið út Snæfell í úndanúrslitunum á meðan að Þróttur Vogum fór í gegnum Leikni.

Liðin eru þau tvö sem enduðu efst í deildarkeppni vetrarins, Ármann taplausir deildarmeistarar, en Þróttur í öðru sætinu með fjórtán sigra og fjögur töp á tímabilinu.

Í þessum fyrsta leik eivígis liðanna sigraði Ármann með 102 stigum gegn 77.

Atkvæðamestur fyrir Ármann í leiknum var Gunnar Ingi Harðarson með 35 stig á meðan að Nökkvi Már Nökkvason var með 23 fyrir Þrótt.

Vinna þarf tvo leiki til þess að tryggja sér sæti í fyrstu deildinni.

Heimasíða deildarinnar

Leikur dagsins

Úrslitaeinvígi 2. deildar karla

Ármann 102 – 77 Þróttur

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -