Nýliðarnir í Bónusdeildinni þetta tímabilið, ÍA og Ármann, mættust í lokaumferð deildarkeppninnar í AvAir-höllinni á Akranesi í kvöld. ÍA var fyrir leikinn fallið úr deildinni á meðan Ármenningar gátu með sigri í leiknum tryggt veru sína í efstu deild næsta tímabil.
Ármenningar byrjuðu leikinn af krafti, vel studdir af fjölmörgum áhorfendum sem fylgdu liðinu upp á Akranes, og komust í 0–9 á fyrstu tveimur mínútunum. Skagamenn tóku aðeins við sér og svöruðu með 9–2 kafla á næstu tveimur mínútum. Þetta var svo gangur leiksins næstu mínútur fyrsta leikhluta. Ármenningar héldu sínum leik þó í aðeins meira jafnvægi en ÍA og leiddu eftir fyrsta leikhlutann, 27–32.
Ármenningar settu svo fyrstu stig annars leikhluta og náðu fljótt upp níu stiga forystunni sem þeir komust í á upphafsmínútum leiksins. ÍA átti í mestu vandræðum með að komast aftur inn í leikinn og um miðjan annan leikhluta voru gestirnir úr Laugardalnum búnir að auka muninn og komnir í þægilega stöðu, 18 stigum yfir. ÍA var þá einungis búið að skora 7 stig í leikhlutanum á móti 20 stigum Ármenninga. Ármenningar náðu muninum svo mest upp í 20 stig áður en ÍA tók aðeins við sér og skoraði sjö stigum meira en Ármann á síðustu mínútum leikhlutans, en betur mátti ef duga skyldi og staðan í hálfleik var ÍA 47 – Ármann 60.
Ólíkt tveimur fyrri leikhlutum þá var það ÍA sem skoraði fyrstu stig þriðja leikhluta. Liðin skiptust svo á að skora og undir lok fjórðungsins var ÍA búið að ná muninum niður í 9 stig en Ármenningar svöruðu því með tveimur þristum í röð. Þegar þriðja leikhluta lauk var staðan þannig að Ármenningar leiddu með 11 stigum fyrir lokaleikhlutann, ÍA 69 – Ármann 80.
ÍA skoraði fyrstu 8 stig fjórða leikhluta og eftir tæpar tvær leikmínútur fjórðungsins var munurinn allt í einu kominn niður í eina þriggja stiga körfu, 77–80, og Ármenningar tóku leikhlé. Eftir leikhléið fór leikurinn í meira jafnvægi, liðin skiptust á að skora og varnir beggja liða hertust aðeins. Hiti var að komast í leikinn sem virtist henta gestunum betur og höfðu þeir náð tíu stiga forystu þegar þrjár mínútur voru eftir af leiknum.
Skagamenn tóku þá við sér, náðu muninum aftur niður í þrjú stig þegar 12,4 sekúndur voru eftir af leiknum. Ármenningar tóku þá leikhlé. Skagamenn brutu strax eftir leikhléið og Ármann setti niður bæði vítin og þá var komið að ÍA að taka leikhlé. 10,8 sekúndur eftir og munurinn 5 stig. ÍA setti niður þrist eftir leikhléið og braut svo strax og sendi Ármenninga á línuna með 2,2 sekúndur eftir af leiknum og tveggja stiga forystu. Aftur settu Ármenningar bæði skotin niður, munurinn fjögur stig og ÍA tók leikhlé í veikri von enda tveggja körfu munur. Lokaskot ÍA geigaði og niðurstaðan 103–107 sigur Ármenninga sem halda því sæti sínu í Bónusdeildinni á næsta tímabili.







Fyrirferðamestu menn:
ÍA
- Darryl Morsell: 34 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar
- Gojko Zizic: 27 stig, 12 fráköst
- Ilija Dokovic: 20 stig, 14 stoðsendingar
Ármann
- Bragi Guðmundsson: 25 stig, 6 fráköst
- Daniel Love: 24 stig, 4 fráköst, 7 stoðsendingar
- Marek Dolezaj: 19 stig, 6 fráköst
Athyglisverðir punktar úr leiknum:
- Ármann tók 14 víti í fyrsta leikhluta á móti 8 vítum ÍA.
- Ármann hitti úr 11 vítum í fyrsta leikhluta á móti 6 hjá ÍA.
- Munurinn á liðunum eftir fyrsta leikhluta var einmitt 5 stig.
- Þriggja stiga nýting Ármanns í fyrri hálfleik var mjög góð, 7 af 12.
- Ármann var með 1 skráð sóknarfrákast í fyrri hálfleik, ÍA með 0.
- Ármann skoraði fyrstu körfu beggja leikhluta fyrri hálfleiks.
- ÍA skoraði fyrstu körfu beggja leikhluta í seinni hálfleik.
- ÍA tók svo 6 sóknarfráköst í 3. leikhluta, Ármann 5.
- Bæði lið notuðu 8 leikmenn strax í fyrsta leikhluta.
- Til marks um hvað bæði lið ætluðu að vinna, spiluðu þau ekki á fleiri leikmönnum í leiknum.
- ÍA komst aldrei yfir í leiknum.
Umfjöllun: HGH Myndir: Jónas H. Ottósson





