Ari Gunnarsson hættir sem þjálfari meistaraflokks Vals eftir tímabilið en hann hefur stjórnað liðinu í tvö tímabil. Þetta sagði hann í samtali við Karfan.is eftir sigurinn á Skallagrím í lokaumferð Dominos deildar kvenna. Hann sagðist ánægður með að enda á sigri og sagði sínar konur hafa verið góðar í leik dagsins.
„Mér var tilkynnt eftir leikinn gegn Stjörnunni að ég yrði ekki endurráðinn. Þannig er það bara.“ sagði Ari. Viðtalið við Ara má finna í heild sinni hér að neðan:




