Keflavík hefur samið við Amaiquen Siciliano um að leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili. Siciliano er argentínskur landsliðsleikstjórnandi sem einnig er með ítalskt vegabréf. Hún kemur til landsins með dýrmæta reynslu úr Evrópuboltanum en hún hefur áður leikið í næstefstu deildum á bæði Ítalíu og Spáni.
Arnór þjálfari liðsins lýsir yfir mikilli ánægju með komu hennar og bindur miklar vonir við framlag hennar á vellinum. Hjá Keflavík ríkir mikil eftirvænting eftir því að sjá þennan öfluga leikstjórnanda á parketinu í vetur.



