HomeFréttirAnnar lokasprettur sem fellur ekki Íslands megin

Annar lokasprettur sem fellur ekki Íslands megin

 
Stelpurnar í U16 ára landsliðinu máttu rétt í þessu sætta sig við annað naumt tap á Norðulandamótinu í Svíþjóð. Að þessu sinni kom ósigurinn gegn Dönum eftir spennandi leik en Danir voru sterkari á lokasprettinum og höfðu sigur 52-66. Ísland tapaði framlengdum leik gegn Noregi í morgun og því tveir hörkuleikir að baki hjá liðinu sem hefðu allt eins getað verið sigurleikir en herslumuninn vantaði.
Liðunum gekk illa að finna körfuna á fyrstu mínútum leiksins, staðan aðeins 2-2 eftir fjögurra mínútna leik en þá kvaddi Andrea Björt Ólafsdóttir sér hljóðs og setti niður þrist og kom Íslandi í 5-2. Framan af var Ísland sprækari aðilinn og leiddi 8-7 að loknum fyrsta leikhluta.
 
Í öðrum leikhluta virtust þær íslensku ætla að stinga af, Guðlaug Björt Júlíusdóttir gerði fjögur hraðaupphlaupsstig í röð fyrir Ísland og Hallveig Jónsdóttir setti niður þrist og staðan orðin 18-9 en þá bitu Danir frá sér.
 
Þær dönsku fóru að pressa og komu okkar stelpum í töluverð vandræði og náðu að komast yfir 21-23. Ísland fann þó taktinn að nýju, Sara Rún setti þrist og kom Íslandi yfir á nýjan leik, 24-23 og þær íslensku leiddu síðan 28-25 í hálfleik.
 
Sara Rún Hinriksdóttir var með 6 stig í hálfleik og Hallveig Jónsdóttir 5.
 
Hallveig Jónsdóttir kom Íslandi í 40-35 og skömmu síðar í þriðja leikhluta var staðan orðin 45-38 Íslandi í vil eftir þrist frá Andreu Björt Ólafsdóttur. Enn á ný náðu Danir að saxa á forskotið og svo komast yfir og leiddu þær rauðu 47-48 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Í fjórða leikhluta fraus yfir hjá íslenska liðinu, ekkert gekk í sóknarleiknum og boltinn dansaði af hringnum í hverri einustu sókn. Íslenska liðið náði ekki að skora fyrrr en eftir rúmlega sjö mínútna leik í fjórða og þá minnkaði Ísland muninn í 49-58. Danir léku grimma vörn á lokasprettinum og það var það sem skildi liðin að þetta sinnið. Lokatölur 52-66.
 
Það kom illa niður á íslenska liðinu í dag að huga ekki betur að grunnatriðunum og þær dönsku hrifsuðu til sín ótal sóknarfráköst sem gáfu vel í dag.
 
Liðið mætir svo Svíum á morgun kl. 15:00.
 
Vegna bilana í tölfræðikerfinu hér í Svíþjóð þá er ekki unnt að birta tölur úr leiknum en við gerum það um leið og þær berast.
 
Fréttir
- Auglýsing -