Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Kinu Rochford er látinn 35 ára að aldri.
Rochford, sem var fæddur árið 1990 og uppalinn í Brooklyn í New York, var öflugur og eftirminnilegur leikmaður sem spilaði hér á landi á árunum 2018 til 2020. Hann lék fyrst með Þór í Þorlákshöfn í efstu deild þar sem hann fór mikinn og var meðal annars valinn besti leikmaður janúarmánaðar árið 2019, en síðar spilaði hann með Hamri í Hveragerði.
Rochford var þekktur fyrir mikinn kraft í teignum, frákastahörku og litríkan persónuleika sem kveikti í stúkunni. Körfuboltasamfélagið á Íslandi minnist hans með hlýju og eru aðstandendum færðar dýpstu samúðarkveðjur.



