KR hampaði fyrsta titli tímabilsins í körfuknattleik karla í kvöld eftir öruggan 106–79 útisigur á Grindavík í leiknum um Meistara meistaranna í HS Orku-höllinni.
Heimamenn byrjuðu betur en KR-ingar sneru leiknum algjörlega sér í vil með frábærum öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl eftir það.
Rætt var við Jakob Sigurðarson, þjálfara KR, eftir leik og má sjá viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.




