HomeBónus deildinBónus deild kvennaAna Clara Paz til Tindastóls

Ana Clara Paz til Tindastóls

Hin fjölhæfa Ana Clara Paz er gengin í raðir Tindastóls og mun leika með kvennaliði félagsins á komandi tímabili.

Paz, sem er 180 cm framherji eða bakvörður með tvöfalt argentískt og ítalskt ríkisfang, þekkir íslenska körfuboltann vel en hún hefur áður leikið hér á landi með Stjörnunni og Hamri/Þór.

Á ferli sínum hefur Paz leikið víða, meðal annars í heimalandinu Argentínu, Úrúgvæ, Portúgal, Ítalíu, Mexíkó og Kólumbíu. Israel Martín, þjálfari Tindastóls, fagnar komu hennar og tekur fram að reynsla hennar af íslensku deildinni muni skipta miklu máli, ásamt því að hjálpa nýjum argentínskum leikmönnum liðsins, Maca og Flor, að aðlagast aðstæðum. Paz segist sjálf vera spennt fyrir komunni í Skagafjörðinn og ætla sér alla leið á toppinn með liðinu í vetur.

Fréttir
- Auglýsing -