spot_img
HomeFréttirAlltaf gott að koma heim, maður finnur að varirnar eru orðnar þurrar...

Alltaf gott að koma heim, maður finnur að varirnar eru orðnar þurrar og húðin fer aðeins að þorna

Ísland tekur á móti Bretlandi kl. 16:45 í dag í Laugardalshöll í öðrum leik sínum í undankeppni HM 2027. Í fyrsta leik keppninnar vann íslenska liðið frækinn sigur gegn Ítalíu úti í Tortona.

Geta þeir því með sigri á morgun tryggt sér efsta sæti riðils síns fram yfir áramót, en næsti leikjagluggi keppninnar er í lok febrúar 2026. Þá mun íslenska liðið leika heima og heiman gegn Litháen.

Hérna er heimasíða mótsins

Hérna er hægt að kaupa miða á leikinn gegn Bretlandi

Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í gær og spurði Elvar Már Friðriksson leikmann liðsins út í frábæra frammistöðu hans gegn Ítalíu, við hverju væri að búast í leiknum gegn Bretlandi og hvernig það sé að koma heim í kuldann til Íslands til að spila leik, en hann með félagsliði spilar hann fyrir lið Anwil Wroclaw í Póllandi.

Fréttir
- Auglýsing -