Það var boðið upp á mikla spennu og eftirvæntingu á Meistaravöllum, þegar KR tók á móti Keflavík í fyrsta leik 8-liða úrslita Bónus deildar kvenna.
Þótt deildarkeppnin hafi verið jöfn og liðin hafi endað í sitthvorum riðlinum eftir skiptingu deildarinnar, var það KR-liðið sem sýndi styrk sinn þegar mest á reyndi og landaði sannfærandi 16 stiga sigri, 85–69.
Karfan spjallaði við Daníel Andra Halldórsson þjálfara KR eftir leik á Meistaravöllum.




