spot_img
HomeFréttirAl'lonzo Coleman gerði það sem honum sýndist er Stjarnan vann í Hafnarfirðinum

Al’lonzo Coleman gerði það sem honum sýndist er Stjarnan vann í Hafnarfirðinum

Haukar tóku á móti Stjörnunni í Schenkerhöllinni í kvöld í 7. umferð Dominosdeildar karla. Haukarnir voru að leita að sínum fjórða sigri í röð á meðan að Stjarnan var að vonast eftir því að komast aftur á sigurbraut eftir tap í seinasta leik. Eftir mikið jafnræði framan af átti Stjarnan frábæran þriðja leikhluta sem þeir unnu með 17 stigum og vó spilamennska Al'lonzo Coleman's og Ágúst Angantýssonar þar mest. En Al'lonzo Coleman átti frábæran leik í kvöld þar sem hann var með 29 stig, 10 fráköst, 7 stoðsendingar og 50% skotnýtingu hvort sem það var í tveggja- eða þriggjastiga skotum. Þessi þriðji leikhluti ásamt góðum kafla um miðjan fjórða leikhluta, þar sem Haukarnir fóru í mikla villu vitleysu, tryggði þeim sigurinn þrátt fyrir bakka klór hjá Haukunum.

 

Leikurinn byrjaði á rólegu nótunum og skiptust liðin á að skora. Haukar áttu í smá vandræðum með sendingarnar sínar og voru þeir komnir með 4 tapaða bolta á fyrstu fimm mínútum leiksins en staðan var þá 11-11. Þeim tókst að stoppa upp í það og voru aðeins með einn tapaðann bolta það sem eftir lifði leikhlutans. Ekkert annað breyttist hjá liðinum og var staðan 21-20 eftir fyrsta leikhlutann. Justin Shouse eigði von um að koma Stjörnunni yfir í lokasókn leikhlutans en var snjalllega neitað af Hjálmari Stefánssyni sem varði skotið hans.

 

Haukar settu í lás í vörninni hjá sér á upphafs mínútum annars leikhluta og rann skotklukkan út hjá Stjörnunni í tvígang. Það gerðu þó ekki mikið fyrir Haukana þar sem Stjarnan spilaði einnig fantavörn og þío að skotklukkan væri ekki að renna út hjá Haukunum þá voru þeir ekki að fá opin færi. Al'lonzo Coleman átti þá fína rispu fyrir Stjörnuna þar sem hann skoraði tvær körfu í röð og átti stoðsendingu á Magnús Bjarka Guðmundsson sem smellti niður þrist til að koma Stjörnunni 26-32 yfir. Hjálmar Stefánsson svaraði með því að troða í næstu sókn Hauka. Við það róuðust leikar aðeins en Haukar áttu síðan góðan sprett í lok fyrri hálfleiks þar sem þeir settu 8 stig á Sjörnuna án mótsvars. Stjarnan átti þó síðasta orðið og setti Al'lonzo Coleman niður glæsilegan flautuþrist og jafnaði leika 36-36.

 

Sjarnan mættu grimmir til leiks í upphafi seinni hálfleiks og yfirspiluðu þeir Haukanna 12-4 á fyrstu fjóru mínútunum og leiddu 40-48. Ekki nóg með það heldur misstu Haukarnir líka Finn Atla Magnússon útaf vegna villuvandræða en hann nældi sér í sína fjórðu villu snemma. En hann var búinn að vera spila mjög vel. Kári Jónsson setti niður langan þrist fyrir Haukanna og vonuðust heimamenn um að þá yrði vendipunktur hjá þeim en Ágúst Angantýsson setti þá 5 stig í röð fyrir Stjörnuna, þar af eina troðslu, og drap það algjörlega í fæðingu. Stjarnan komnir 10 stigum yfir, 43-53. Haukarnir fengu þá hverja villuna dæmda á sig eftir annari sem varð til þess að Stjarnan fór 11 sinnum á vítalínuna í leikhlutanum og brenndu þeir aðeins af tveimur þeirra. Staðan því 46-63 fyrir gestina fyrir lokaleikhlutann.

 

Haukarnir byrjuðu fjórða leikhlutann mjög sterkt þar sem þeir skoruðu fljótt 5 stig og ollu Stjörninni töluverðum vandræðum í sókn þeirra bláklæddu. En Stjarnan lætur ekki buga sig auðveldlega og eftir að hafa næstum spilað út enn eina skotklukkuna setti Al'lonzo Coleman langan þrist sem kveikti aldeilis í þeim þar sem þeir settu þá 10 stig í röð og komnir í nokkuð þægilega stöðu 53-73. Haukarnir gáfust þó ekki upp og reyndu hvað þeir gátu en Sjarnan lét það ekki mikið á sig fá og þökk sé 20 stiga forystunni sem þér voru búnir að ná sér í var bilið of mikið Haukanna til að brúa og lönduðu gestirnir 12 stiga sigri, 73-85.

Justin Shouse gerðist sekur um að brjóta hina óskrifðu reglu um að þú skalt ekki reyna sækja fleiri stig þegar leikmenn hafa sætt sig við úrslitin og ætla láta loka sekúndurnar líða er hann skoraði lokakörfu leiksins er tíminn rann út og allir aðrir en hann voru hættir að spila. Uppskar hann mjög hávært baul frá áhorfendum fyrir vikið. Skamm Justin, skamm.

 

Tölfræði

Myndasafn eftir Axel Finn

Fréttir
- Auglýsing -