HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftnesingar sterkari eftir því sem á leið

Álftnesingar sterkari eftir því sem á leið

Fyrsti leikur tímabilsins er alltaf einstakur. Það er eitthvað við stemninguna í húsinu, brosin á vörum áhorfenda og hversu lítið áferðafallegur körfubolti er spilaður framan af leik.

Þetta var allt til staðar á Álftanesi í kvöld. Baráttuglaðir gestirnir frá Egilsstöðum stóðu heldur betur í Álftnesingum í nokkrar mínútur þangað til heimamenn stigu einfaldlega á bensíngjöfina og slátruðu leiknum að hætti hússins, 111-77. Að mati undirritaðs ættu leikmenn gestaliðsins að pæla sem minnst í þessum leik, þessi var aldrei að fara að vinnast.

Álftnesingum er spáð frábæru gengi í vetur og flestir sérfræðingar, hvort sem þeir eru innan vébanda samtaka íþróttafréttamanna eða ótýndir hlaðvarparar hafa spáð liðinu titlinum. Hvort þessi einstaka frammistaða segi áhorfendum eitthvað um það skal látið ósagt, en þetta var fagmannlega gert hjá liðinu á öllum vígstöðvum. Þar eru áhorfendur og aðstandendur með taldir.

Martin Laksa og Luka Gasic skoruðu 21 stig hvor fyrir Álftanes en Marquis Jackson skoraði 20 stig fyrir gestina.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -