Karl Kristján Sigurðarson hefur gengið til liðs við Álftanes og mun leika með liðinu á komandi tímabili. Karl kemur til félagsins frá Val.
Karl er mjög efnilegur leikmaður sem á að baki leiki með nánast öllum yngri landsliðum Íslands. Hann lék meðal annars stórt hlutverk með U20 ára landsliðinu í A-deild Evrópumótsins á síðasta ári og stóð sig virkilega vel þar. Er honum lýst sem frábærri viðbót við leikmannahóp Álftaness fyrir komandi átök.

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Álftaness, fagnar komu Karls: „Karl er ungur og mjög spennandi leikmaður. Við hlökkum til að vinna með honum á komandi tímabili og hjálpa honum að taka næstu skref á sínum ferli.“




