HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftanes skoraði 119 stig og stakk ÍR af í seinni hálfleik

Álftanes skoraði 119 stig og stakk ÍR af í seinni hálfleik

Álftnesingar sóttu tvö afar sannfærandi stig í Skógarsel í kvöld þegar þeir lögðu ÍR að velli með 31 stigs mun, 119–88, í Bónus deild karla.

Sóknarleikur gestanna var á öðru stigi allan leikinn en sérstaklega innan teigs, þar sem Álftanes skoraði heil 70 stig gegn 48 stigum ÍR og hitti úr 75% tveggja stiga skota sinna (39/52).

Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik þar sem munurinn var sex stig í hléi, 60–54, stungu Forsetarnir af í þeim þriðja með 31–19 áhlaupi og gerðu endanlega út um viðureignina. Þá reyndust 20 tapaðir boltar heimamanna dýrkeyptir en Álftanes refsaði grimmilega og skoraði 29 stig beint upp úr mistökum ÍR.  

Dedrick Deon Basile stjórnaði spilinu af festu og skilaði 22 stigum ásamt sjö stoðsendingum fyrir gestina. Jordan Semple átti sömuleiðis frábæran leik með 22 stig, tíu fráköst og sex stoðsendingar, Sigurður Pétursson bætti við 17 stigum, sex fráköstum og fimm stoðsendingum, og Luka Gasic skoraði 15 stig og reif niður sex fráköst.  

Hjá ÍR var Montez Mathis atkvæðamestur með 23 stig og fimm fráköst. Jarrett Bryant skoraði 15 stig, og þeir Kevin Kone og Kristján Fannar Ingólfsson lögðu báðir til 13 stig hvor. 

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -