HomeBónus deildinBónus deild karlaÁlftanes lagði Íslandsmeistara Grindavíkur í stigaháum spennuleik – Dedrick Basile fór á...

Álftanes lagði Íslandsmeistara Grindavíkur í stigaháum spennuleik – Dedrick Basile fór á kostum gegn gömlu félögunum

Álftanes vann glæsilegan heimasigur gegn Íslandsmeisturum Grindavíkur í 7. umferð Bónusdeildar karla í Kaldalónshöllinni í kvöld, 104–97.

Heimamenn voru án lykilmanna á borð við Jordan Semple, Dúa Þór Jónsson og Luka Gasic í kvöld, en það kom ekki að sök. Liðin skiptust á að hafa forystuna með snörpum áhlaupum í fyrri hálfleik en Grindavík leiddi með tveimur stigum í hálfleik, 51–49 (27–24, 22–27).

Álftanes náði hins vegar frumkvæðinu á ný í þriðja leikhluta (27–25) og hélt haus á spennuþrungnum lokamínútum þrátt fyrir að Baldri Þór Ragnarssyni, þjálfara liðsins, hafi verið vísað á dyr um miðjan fjórða leikhluta. Þá munaði einnig um það fyrir gestina að missa Mirza Bulic út af með fimm villur á lokakaflanum.

Dedrick Deon Basile var stórkostlegur gegn sínum gömlu félögum og var maður leiksins með 32 stig, 6 fráköst, 10 stoðsendingar og 41 framlagspunkt. Martins Laksa átti einnig frábæran leik með 23 stig og 11 fráköst, Sigurður Pétursson skoraði 20 stig, Haukur Helgi Briem Pálsson 13 stig og Frank Aron Booker 12 stig.

Hjá Grindavík var Deandre Kane atkvæðamestur með 26 stig og 8 fráköst, Jeremy Pargo skoraði 23 stig og gaf 8 stoðsendingar og Mirza Bulic skilaði 15 stigum og 4 fráköstum.

Með sigrinum fer Álftanes inn í landsleikjahléð í öðru sæti deildarinnar með 12 stig, tveimur stigum á eftir toppliði KR, á meðan Grindavík er í sjötta sæti með 8 stig. Eftir hléið mætir Álftanes liði Njarðvíkur á útivelli og Grindavík tekur á móti Hetti þann 3. desember klukkan 19:15.

Tölfræði leiks

Myndasafn (Gunnar Jónatansson)

Fréttir
- Auglýsing -