spot_img
HomeFréttirÁlftanes berst enn fyrir sæti í úrslitakeppninni

Álftanes berst enn fyrir sæti í úrslitakeppninni

 
Álftanes er enn í baráttunni um sæti í úrslitakeppni annarar deildar karla eftir sigur á KV á mánudagskvöld 81-69 í Forsetahöllinni á Álftanesi. Sóknarleikur liðsins gekk betur en oft áður.
Álftnesingar voru yfir 25-21 eftir fyrsta fjórðung og 44-39 í hálfleik. Eftir þriðja fjórðung var staðan 56-52 og loks 81-69 í lokin. Heimamenn voru alltaf yfir en aldrei nema 4-10 stigum. Karakter liðsins skilaði sér samt í að þegar gestirnir voru búnir að minnka muninn í þrjú stig kom yfirleitt góður kafli heimamanna þar sem forustan var tryggð á ný. Þannig skiptust liðin á allt til loka.
 
Gísli Sigurðarson, þjálfari Álftaness, segir meiri yfirvegun hafa verið í sóknarleiknum en oft áður og liðið því tapað færri boltum. "Það var mikilvægt að vinna þennan leik því með því blöndum við okkur aðeins í barráttuna um sæti í úrslitakeppninni. Ef hann hefði tapast hefðu þeir náð okkur og við þá nokkuð fastir í miðjum riðli."
 
Skammt er samt stórra högga á milli því Álftanes heimsækir Heklu í kvöld en Sunnlendingarnir völtruðu yfir Nesmennina þegar liðin mættust fyrir jól.
 
Kolbeinn Sigurbjörnsson og Guðjón Ásmundsson voru stigahæstir í liði Álftaness með 12 stig. Gísli þjálfari og Sveinn Guðmundsson skoruðu 11.
 
Mynd og umfjöllun: GG
Fréttir
- Auglýsing -