Þær fréttir bárust í síðustu viku að sameinað lið Hrunamanna/Laugdæla hefði dregið lið sitt úr keppni í 1. deild karla. Hrunamenn sigruðu 2. deild karla á síðasta tímabili eftir að hafa unnið Gnúpverja í úrslitaeinvígi.
Gnúpverjar sem einnig fóru upp í 1. deild halda ótrauðir áfram og hafa mannað lið fyrir tímabilið í 1. deild karla. Til stóð að Hrunamenn/Laugdælir myndu stilla upp liði í 1. deild en stjórn liðsins hefur nú tilkynnt KKÍ að af því verði ekki og liðið því dregið úr keppni. Einungis þrjár vikur eru þangað til keppni í 1. deild karla hefst.
Þar sem deildin mun eingöngu innihalda níu lið í vetur hefur því verið ákveðið að leika þrefalda umferð og leika því öll lið 24 leiki í vetur. Fyrir vikið mun ekkert lið falla niður 2. deild karla á þessu tímabili.
Karfan.is heyrði hljóðið í Árna Þór Hilmarssyni þjálfara Hrunamanna/Laugdæla á dögunum og sagði hann ákvörðunina hafa verið erfið og sérstaklega í ljósi þess að mikið hafði áunnist síðasta árið.
"Forráðamenn meistaraflokks Hrunamanna/Laugdæla sem vann sannfærandi sigur í 2. deild karla á sl. tímabili komust að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að tefla fram liði í 1. deild í vetur. Sú ákvörðun var erfið því mikið hafði áunnist síðastliðinn vetur. Rekstur og árangur var vonum framar. Það reyndist þó erfitt að fá fólk til þess að koma að starfinu í kringum meistaraflokkinn" sagði Árni Þór og bætti við:
"Breytingar í leikmannahópnum voru þónokkrar og nokkrir lykilmenn liðsins frá árinu áður höfðu gefið það út að þeir myndu ekki taka slaginn í 1. deild. Forsvarsmenn félaganna mátu því stöðuna þannig að ekki myndi takast að halda úti 1. deildarliði í vetur. Hugsjónin um mikilvægi þess að hafa spilandi meistaraflokk í 1. deild leiddi okkur þó áfram og héldum við lengi í vonina um að möguleikarnir væru fyrir hendi. Haft var samband við skrifstofu KKÍ upp úr 20. ágúst og liðið formlega tilkynnt úr keppni skömmu eftir það."
"Næstu skref forráðamann Hrunamanna og Laugdæla voru að huga að auknu samstarfi við FSu í víðu samhengi með það að markmiði að efla körfuboltastarf á Suðurlandi og tóku forráðamenn FSu vel í það erindi. Hefur sú vinna skilið þeim árangri að Florijan Jovanov mun leika með FSU og þjálfa áfram yngri flokka í uppsveitum. Er stefnan sett á að efla og auka samstarfið í framtíðinni en hefja það strax með því að FSU leiki nokkra af sínum heimaleikjum í íþróttahúsinu á Flúðum í vetur. Þar sem komin er niðurstaða í málið óskum við eftir því að samstarfið verði gott og leiði okkur áfram til framtíðar því tækifærin eru fjölmörg. Við ætlum að horfa fram á veginn. Það er spennandi vetur framundan."




