Dómaranefnd KKÍ hefur sett fram sínar áherslur fyrir komandi leiktíð í körfuboltanum. Þar kennir ýmissa grasa en m.a. verður hart tekið á floppi og öðrum leikaraskap, menn sem moka ættu að láta af þeim starfa og við sérstakar aðstæður s.s. slagsmál verður dómara heimilt að notast við upptökubúnað til að úrskurða í málinu.
Hér að neðan er smá úttekt á áherslunum en þær má nálgast í heild sinni hér á heimasíðu KKÍ
Tekið verður hart á svokölluðu ,,floppi" og öðrum leikaraskap og verður refsingin tæknivilla. Heimilt verður fyrst að veita aðvörun og tekið er fram að aðeins verður aðvarað einu sinni. Þá segir einnig að auking hafi orðið á því að leikmenn séu að ,,moka" boltanum þegar beitt er hraða- eða stefnubreytingu til að komast fram hjá varnarmanni og á því verður greinilega tekið svo skóflugjarnir leikmenn mega passa sig.
Við sérstakar aðstæður eins og t.d. slagsmál eða aðra óíþróttamannslega framkomu sem varðað getur brottvísun er dómara heimilt að notast við upptökubúnað, sé hann fyrir hendi, til að úrskurða í málinu. Lið eiga svo ekki rétt á því að fara fram á að dómarar skoði atvik af upptöku og þá skulu fulltrúar liðanna ekki vera viðstaddir þegar upptakan er greind af dómurum.