spot_img
HomeFréttirAganefnd úrskurðar í tveimur málum

Aganefnd úrskurðar í tveimur málum

17:56

{mosimage}
(Dæmt var í kæru sem barst á Yngva Gunnlaugsson þjálfara Hauka)

Aganefnd hefur tekið fyrir tvö mál sem bárust henni í síðustu viku.

Ingvi Steinn Jóhannsson, þjálfari Þróttar Vogum í 1. deild karla, hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í leik Þróttar Vogum gegn Þór frá Þorlákshöfn.

Aganefndin hefur einnig tekið fyrir kæru sem barst á Yngva Gunnlaugsson, þjálfara Hauka í Iceland Express deild kvenna.

Úrskurður Aganefndar er svohljóðandi:
Aganefnd lítur svo á að þrátt fyrir að ummæli kærða verði að teljast óheppileg og geti sem slík verið túlkuð á þann hátt að rýrð sé varpað á starfsheiður dómara í umrædum leik, sé ekki rétt að beita refsiviðurlögum að svo stöddu. Hins vegar vill nefndin árétta að hún telur mikilvægt að forsvarsmenn félaga sýni gott fordæmi með framkomu sinni á leikjum, gagnvart öllum þeim sem þar koma að málum.

Myndir: [email protected]

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -