spot_img
HomeFréttirAganefnd: Magnús Gunnars í bann og sekt á Keflavík

Aganefnd: Magnús Gunnars í bann og sekt á Keflavík

Aga- og úrskurðarnefnd birti í dag tvo úrskurði sem tengjast Keflavík. Magnús Gunnarsson fékk eins leiks bann fyrir olnbogaskotið sem hann gaf Brynjari Þór Björnssyni í leik Keflavíkur og KR í Dominosdeild karla í DHL höllinni fyrir rúmri viku, og Körfuknattleiksdeild Keflavíkur fékk 25.000 kr. sekt vegna háttsemi stuðningsmanna liðsins í leik Hauka og Keflavíkur í Dominosdeild kvenna í byrjun febrúar.
 
Sjá má úrskurðarorðin hér að neðan:
 
Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 15-2013/2014:
“Með vísan til ákvæðis h. liðar 1. mgr. 13. gr., sbr. d. liðar 2. mgr. 12. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal kærði, Körfuknattleiksdeild Keflavíkur, greiða kr. 25.000 í sekt, vegna háttsemi áhangenda liðsins gagnvart dómurum eftir leik Keflavíkur og Hauka í Dominos-deild kvenna, sem fram fór 9. febrúar 2014. Vill aga- og úrskurðarnefnd að koma á framfæri ábendingu til forráðamanna Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur um að þeir tryggi betur öryggi dómara fyrir og eftir leiki sem félagið ber ábyrgð á”.
 
Agaúrskurður nr. 21/2013-2014.
“Með vísan til ákvæðis 2. mgr. 6. gr., sbr. e. liðar 2. mgr. 12. gr. og með hliðsjón af c. lið 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga – og úrskurðarmál skal hinn kærði, Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Keflavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik KR og Keflavíkur, í úrvaldsdeild karla, sem fram fór þann 24. febrúar 2014.”
 
Heimild: Keflavik.is
 
Fréttir
- Auglýsing -