Áfram í Vesturbænum

Þorvaldur Orri Árnason hefur framlengt samning sinn við KR og mun spila í Vesturbænum út tímabilið 2026-2027.

Þorvaldur Orri er uppalinn KR-ingur og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik tímabilið 2019-2020. Eftir eitt tímabil hjá Njarðvík sneri hann aftur heim í KR þar sem hann hefur verið í lykilhlutverki síðastliðin tvö tímabil.

Þorvaldur segist virkilega spenntur fyrir því að halda áfram á þessari vegferð með félaginu og Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, fagnar framlengingunni og segir Þorvald hafa átt frábært sumar og æft gríðarlega vel.

Fréttir
- Auglýsing -