HomeBónus deildinBónus deild karlaÁfram í Þorlákshöfn

Áfram í Þorlákshöfn

Undirbúningur Þórs fyrir næsta tímabil er formlega hafinn og það með miklum látum. Stjórn félagsins tilkynnti í dag að Davíð Arnar Ágústsson, sem flestir stuðningsmenn þekkja sem Dabba kóng, hafi skrifað undir nýjan samning fyrir komandi tímabil.

Þetta eru gríðarleg gleðitíðindi fyrir félagið, enda er Davíð einn allra mikilvægasti hlekkur liðsins og lykilmaður í þeim metnaðarfullu markmiðum sem sett hafa verið fyrir næsta ár. Þetta er jafnframt fyrsta opinbera tilkynningin frá nýrri stjórn félagsins, sem ætlar sér greinilega stóra hluti. Með því að tryggja krafta Dabba kóngs strax í upphafi eru send skýr skilaboð um framhaldið.

„Við ætlum okkur stóra hluti og það er mikil ánægja að Davíð sé til í slaginn með okkur. Við byrjum af fullum krafti!“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Fréttir
- Auglýsing -