Ismael Herrero Gonzalez hefur gert nýjan samning við körfuknattleiksdeild Breiðabliks og verður áfram á mála hjá félaginu.
Hann mun áfram sinna starfi aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla á næsta tímabili. Samhliða því mun hlutverk hans stækka töluvert innan yngri flokkanna, þar sem hann tekur við yfirumsjón með þjálfun hjá 8. flokki ásamt 11. og 12. flokki karla.
Með þessum breytingum ætlar félagið að samræma leikstíl og þjálfunaraðferðir meistaraflokksins niður í elstu strákaflokkana. Markmiðið er að auðvelda ungu og efnilegu strákunum skrefið upp í meistaraflokksliðið og tryggja stöðugleika í leikmannaþróun klúbbsins.





