Ingvi Þór Guðmundsson hefur framlengt samning sinn við körfuknattleiksdeild Ármanns til næstu tveggja ára og mun því leika með liðinu í Bónus deildinni. Ingvi átti frábært tímabil í fyrra þar sem hann skoraði 11 stig að meðaltali í leik og átti stóran þátt í að liðið náði markmiðum sínum.
Hjá Ármanni ríkir mikil ánægja og stolt með að hafa tryggt sér krafta Ingva áfram, en mörg önnur lið höfðu sýnt honum áhuga. Hann mun leika lykilhlutverk í liðinu á næstu árum, og má vænta frekari frétta af leikmannamálum í Laugardalnum á næstu dögum.




