Steinar Kaldal og aðstoðarþjálfarinn Oddur Birnir Pétursson hafa báðir skrifað undir nýja samninga við Ármann og halda áfram að stýra karlaliðinu í úrvalsdeildinni í körfubolta. Þeir hafa stýrt liðinu saman síðastliðin þrjú ár með góðum árangri.
Undir þeirra stjórn vann Ármann sig upp úr 1. deildinni og tryggði sér áframhaldandi sæti meðal þeirra bestu á nýafstöðnu tímabili.




