spot_img

Áfram í grænu

Njarðvík hefur gert tveggja ára samning við Maciej Baginski.

Maciej er 28 ára gamall reynslubolti sem spilaði um 20 mínútur í leik á síðustu leiktíð þar sem hann skilaði 7 stigum í leik.

Halldór Karlsson formaður UMFN sagði það ánægjulegt að Njarðvík væri að halda kjarnaleikmanni. „Félagið okkar er á góðri vegferð og við teljum lykilþáttinn í því að skapa stöðugleika í hópnum okkar og þar er Maciej einn af okkar lykilmönnum.”

Fréttir
- Auglýsing -