Álftanes hefur tryggt sér mikilvæga undirskrift fyrir næsta tímabil, en lykilmaðurinn Dúi Þór Jónsson hefur framlengt samning sinn við félagið.
Dúi hefur verið einn af máttarstólpum Álftanesliðsins síðan það lék í 1. deildinni og er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum liðsins. Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar, segir samninginn mikilvægan lið í því að byggja ofan á þann grunn sem fyrir er.
„Við hlökkum til að sjá hann halda áfram að vaxa sem leikmaður og leiðtogi í búningi Álftaness,“ segir Huginn Freyr í tilkynningu félagsins.
Álftanes hefur fest sig í sessi í efstu deild á síðustu misserum og ljóst er að Dúi Þór mun áfram leika stórt hlutverk í metnaðarfullum áformum liðsins.




