Sænski leikmaðurinn Stina Almqvist hefur endurnýjað samning sinn við Stjörnuna og leikur með liðinu á komandi leiktíð.
Almqvist kom til Stjörnunnar á miðju síðasta tímabili eftir að hafa leikið í Þýskalandi og í bandaríska háskólaboltanum. Hún átti frábæra innkomu í Garðabæinn þar sem hún skilaði 19 stigum og 8 fráköstum að meðaltali í þeim 13 leikjum sem hún spilaði. Stjörnumenn fagna því að halda þessum fjölhæfa leikmanni í sínum röðum fyrir átökin í vetur í ÞG Verk-höllinni.




