Milorad Sedlarevic (Milo) hefur gert nýjan árssamning við Skallagrím og mun gegna hlutverki spilandi aðstoðarþjálfara á sínu þriðja tímabili með félaginu. Samhliða því að leika með meistaraflokki mun hann áfram stýra þjálfun yngri flokka og unglingaliða í Borgarnesi.
Hjá félaginu ríkir mikil ánægja með að halda Milo, en honum er lýst sem öflugum leikmanni, leiðtoga og frábærri fyrirmynd. Milo hlakkar til að leiðbeina ungu liði Skallagríms og stefna á úrslitkeppnina. Í tilkynningunni lét hann jafnframt fylgja með skemmtilega staðreynd þar sem hann fullyrðir að hann sé betri í golfi en Leo.



