Áfram á Skaganum

ÍA hefur samið við Aron Elvar Dagsson um að leika áfram með liðinu á næstu leiktíð.

Þrátt fyrir ungan aldur er Aron einn reynslumesti leikmaður Skagamanna en hann hefur þegar leikið 97 leiki fyrir félagið.

Hjá ÍA ríkir mikil ánægja með að halda honum innan raða félagsins og hlakka stuðningsmenn til að sjá hann í AvAir höllinni á komandi vetri.

Fréttir
- Auglýsing -