Kristrún Edda Kjartansdóttir hefur framlengt samning sinn við KR og mun leika með félaginu í Vesturbænum út tímabilið 2026–2027.
Kristrún, sem er fædd árið 2008, er uppalin hjá KR og hefur verið lykilmaður í sínum flokki upp alla yngri flokka félagsins, auk þess að eiga leiki að baki með yngri landsliðum Íslands.
Daníel Andri Halldórsson, þjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR, fagnar ákvörðun hennar og lýsir henni sem mjög efnilegri körfuboltakonu sem búi yfir mikilli vinnusemi, metnaði og góðu hugarfari. Kristrún kveðst sjálf mjög glöð og spennt fyrir komandi tímabili með skemmtilegum hópi í svörtu og hvítu.



