Alyssa Cerino mun leika sitt þriðja tímabil með Val á komandi leiktíð. Hún hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin ár, en á síðasta tímabili skilaði hún frábærum tölum; 18 stigum, 7,4 fráköstum og 2,4 stoðsendingum að meðaltali í leik.
Bæði leikmaðurinn og Jamil þjálfari fagna áframhaldandi samstarfi, en Jamil lýsir Cerino sem fjölhæfasta leikmanni deildarinnar og algjörum lykilmanni bæði innan vallar sem utan.



