11:08
{mosimage}
(Haukakonurnar og námshestarnir María Lind og Kristín Fjóla)
Haukar hafa ekki bara á að skipa besta liðinu á landinu í meistaraflokki kvenna, heldur eru þær einnig bráðgáfaðar! Í þarsíðustu viku útskrifaðist María Lind Sigurðardóttir frá Kvennaskólanum í Reykjavík með meðaleinkun upp á 9,61. Hún var að sjálfsögðu dúx skólans og fékk meðal annars 10 á öllum lokaprófum ársins. En María Lind er ekki bara afburðanemandi, hún er líka að læra á píanó og spila með Haukum í körfunni. Þetta kemur fram á www.haukar.is
En þær eru fleiri sem gerðu það gott því Kristín Fjóla Reynisdóttir var dúx Flensborgarskólans síðasta laugardag eftir þriggja ára nám. Meðaleinkun Kristínar Fjólu var tæplega 9,4. Hún hlaut 7 viðurkenningar fyrir góðan árangur í hinum ýmsu fögum og ekki laust við að töluverðan styrk hafi þurft til að halda á bókastaflanum, enda útskrifaðist Kristín Fjóla af Náttúrufræðibraut íþróttaafrekssviði þar sem blandað er saman námi og íþróttum, eins og t.d. körfubolta.
Lesa nánar á heimasíðu Hauka: http://www.haukar.is/karfa/4116-afbureanemendur-i-haukum



