spot_img
HomeFréttir"Ævintýraleg stund í Berlín" mest lesna fréttin 2015

“Ævintýraleg stund í Berlín” mest lesna fréttin 2015

 

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur og þakkir fyrir stærsta ár körfuboltans á Íslandi frá upphafi.  Margs er að minnast frá 2015 en þar ber einn viðburður höfðu og herðar yfir aðra en það var auðvitað EM í Berlín þar sem okkar menn og konur, innan vallar sem utan eignuðu sér Berlín um stund í september mánuði.  Um þessi tímamót er vert að skoða þær fréttir sem fengu mesta lesningu á síðasta ári.  Ætti svo sem að koma fæstum á óvart að fréttinn "Ævintýraleg stund í Berlín" sé efst þar á blaði en í þeirri frétt náði Jón Björn Ólafsson ómetanlegri stund á myndband.  Eitthvað sem allir fá gæsahúð í hvert skipti sem horft er á. 

 

Önnur mest lesna frétt ársins var þegar Jón Arnór Stefánsson tilkynnti á Twitter að hann yrði ekki áfram hjá Malaga

 

Twitter-færsla Jóns
 

 

 

Þriðja mest lesna frétt ársins 2015 var svo um ungan troðslukóng frá Keflavík. Arnór Sveinsson sýndi krökkunum á Nettómótinu skemmtilega takta með huggulegum troðslum. 

 

Fréttir
- Auglýsing -