Ætlum bara alla leið

Það var þungt yfir herbúðum Ármanns þegar liðið mætti í Síkið á Sauðárkróki í lokaumferð Bónus deildar kvenna.

Fyrir leikinn var ljóst að örlög liðsins voru ráðin; sigur Hamars/Þórs gegn Keflavík fyrr um daginn þýddi að Ármenningar voru endanlega fallnar úr deildinni. Tindastóll hafði hins vegar að litlu að keppa öðru en stolti og takti fyrir komandi úrslitakeppni, enda sæti þeirra þar þegar tryggt. Niðurstaðan varð öruggur 26 stiga sigur heimakvenna, 95–69.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Evu Rún Dagsdóttur leikmann Tindastóls eftir leik í Síkinu.

Fréttir
- Auglýsing -