HomeFréttirÆska Keflavíkur gjörsigraði Njarðvík

Æska Keflavíkur gjörsigraði Njarðvík

Keflavík sigraði Njarðvík fyrr í kvöld á heimavelli sínum, TM höllinni, í fyrsta leik sínum í Powerade bikarkeppni kvenna, með 68 stigum gegn 37. Keflavík því komið með sinn fyrsta sigur í vetur í jafn mörgum leikjum á meðan að Njarðvík var að tapa sínum öðrum leik.

 

Liðin, sem leika í riðli með Skallagrím og Hamar, því á misjöfnum stað í riðlinum. Þar sem Skallagrímur hefur unnið báða sína leiki (verma toppsætið með Keflavík) og Hamar með einn tapleik (vermir botnsætið með Njarðvík), en bæði lið eiga leik næst á móti því síðarnefnda. Keflavík þann 24. næstkomandi í Hveragerði og Njarðvík, tveimur dögum seinna, á heimavelli í Ljónagryfjunni.

 

Leikur kvöldsins, þó um eiginlegan undirbúningstímabilsleik væri að ræða, að mörgu leyti merkilegur. Njarðvík, sem hafði í lok síðasta tímabils, rétt misst af tækifærinu á að taka þátt í deild þeirra bestu eftir æsispennandi seríu við Stjörnuna, hafði misst af einhverjum leikmönnum í sumar. Sem og kannski frekar þurft að eiga við þá ákvörðun hvort þær vildu samt sem áður spila í efstu deild eftir að KR ákvað á síðustu stundu að draga lið sitt úr keppni. 

 

Keflavík, hafði einnig farið í gegnum sitt. Skipt var um þjálfara, Margrét Sturlaugsdóttir fengin til starfa, sem og höfðu verið þónokkrar leikmannabreytingar í sumar hjá þeim. Lið, þar, sem að fyrir sumarið var eitthvað best mannaða lið síðari ára þurfti að kveðja hæfa leikmenn eins og Hallveigu Jónsdóttur aftur í Val, Ingunni Emblu til Grindavíkur, Birna Valgarðsdóttir setti skóna á hilluna, Carmen Tyson Thomas aftur til Bandaríkjanna og Söru Rún Hinriksdóttur til náms á sama stað, svo eitthvað sé nefnt.

 

Leikurinn hófst á frekar óhefðbundinni uppstillingu fyrir Keflavík. Þar sem að aðeins unglingalandsliðsmenn (svosem af nógu að taka þar) mönnuðu bæði þilfar og skipsborða. Reyndar var það svo að (eins og átti eftir að koma í ljós) þeir leikmenn áttu einmitt eftir að bera uppi leik þeirra alveg til endans. Það var ekki fyrr en um 3 mínútur lifðu eftir af fyrri hálfleiknum sem að Sandra Lind Þrastardóttir og Guðlaug Björt Júlíusdóttir (nýr leikmaður þeirra) rétt sýndu á sér andlitið áður en þær fóru aftur á tréverkið.

 

Leikurinn, sem var virkilega hraður, spennandi og skemmtilegur í fyrri hálfleik hafði allt upp á bjóða sem þú myndir vilja sjá í körfuboltaleik. Keflavík, þó, undir forystu Emelíu Ósk og Thelmu Dís þó alltaf skrefinu á undan og þó leikurinn hafi talnalega séð, enn verið í járnum þegar flautað var til hálfleiks (25-26) efaðist enginn þeirra 200 áhorfenda sem mættir voru um hvort liðið ætti eftir að bera sigur úr býtum.

 

Í seinni hálfleiknum opnaði Keflavík á þrist og horfði aldrei til baka. Skildu stöllur sínar frá Njarðvík algjörlega eftir í rykinu. Enn og aftur að fordæmi þeirra Emelíu og Thelmu, sem báru höfuð og herðar yfir alla sem lögðu stund á bolta í kvöld.

 

Seinni hálfleikurinn endaði 40-11 fyrir Keflavík, þar sem að barátta og samskiptahæfni liðsmanna sigurliðsins varnarlega virtist vera upp á tíu. Leyfðu aðeins 3 stig í þriðja leikhlutanum á meðan að í þeim fjórða leyfðu þær 8. Leikurinn endaði með 31 stigs sigri heimastúlkna, 68 gegn 37.

 

Menn leiksins voru þær Thelma Dís Ágústsdóttir (16 stig, 7 fráköst, 5 stolnir og 4 stoðsendingar) og Emelía Ósk Gunnarsdóttir (15 stig, 7 fráköst, 4 stoðsendingar og 2 stolnir boltar). 

 

Umfjöllun, myndir, viðtöl / Davíð Eldur

Myndasafn

 

Fréttir
- Auglýsing -