Ægir Þór Steinarsson leikmaður Burgos og íslenska landsliðsins setti saman getraunaseðil fyrir Karfan.is fyrir lokaumferð deildarinnar sem fram fer í kvöld. Ægir tippar á að Njarðvík missi af úrslitakeppninni í ár þar sem liðið tapi gegn Þór Þ í kvöld.
Spá Ægis Þórs
Grindavík – Skallagrímur 2
Þór Þorlákshöfn – Njarðvík 1
Þór Akureyri – Snæfell 1
KR – Stjarnan 2
Haukar – Tindastóll 1
ÍR – Keflavík 1
Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15 og að þeim loknum er nokkuð víst að Snæfell og Skallagrímur eru fallin og KR er deildarmeistari, annað tekur endanlega mynd í kvöld.




