HomeFréttirÆgir og Tómas mæta toppliðinu á morgun í undanúrslitum SAC-riðilsins

Ægir og Tómas mæta toppliðinu á morgun í undanúrslitum SAC-riðilsins

Félagarnir Tómas Heiðar Tómasson og Ægir Þór Steinarsson verða í eldlínunni á morgun þegar háskólalið þeirra Newberry mætir Anderson skólanum í undanúrslitum SAC-riðilsins í 2. deild NCAA háskólaboltans í Bandaríkjunum. Á leið sinni í undanúrslit lagði Newberry lið Lenoir-Rhynes að velli 85-70.
Þetta er aðeins í fjórða sinn sem skólinn kemst í undanúrslit SAC-riðilsins og aðeins í annað sinn í sögu skólans sem bæði karla- og kvennalið skólans leika í undanúrslitum.
 
Viðureign Newberry og Anderson skólans á morgun fer fram í Catawba Valley Community College´s Tarlton Center í Hikcory, Norður Karólínu. Það verður vissulega við ramman reip að draga hjá Ægi og Tómasi á morgun en Anderson skólinn hefur unnið 17 leiki og aðeins tapað einum í SAC-riðlinum á meðan Newberry hefur unnið 9 og tapað 9.
 
 
  
Fréttir
- Auglýsing -