spot_img
HomeFréttirÆgir: Mjög spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni

Ægir: Mjög spennandi tímar framundan hjá Stjörnunni

 

Rétt í þessu var tilkynnt að landsliðsmaðurinn Ægir Þór Steinarsson hafi samið við Stjörnuna um að leika með þeim í Dominos deild karla. Samningurinn var undirritaður í Mathúsi Garðabæjar nú kl 14:00.

 

Samningur Ægis er til tveggja ára með möguleika á því þriðja. Ægir kemur frá liði TAU Castello þar sem hann lék á síðasta tímabili en þar áður lék hann með San Pablo Burgos.

 

KR mun einnig hafa verið á höttunum eftir Ægi en hann hefur nú ákveðið að skrifa undir hjá Garðarbæjarfélaginu. Ægir er uppalinn í Fjölni en lék með KR eitt tímabil 2015-2016. 

 

Karfan spjallaði við Ægi eftir að samningurinn var undirritaður.

Fréttir
- Auglýsing -