spot_img
HomeFréttirÆfingabúðir Ágústs Björgvinssonar í Vodafonehöllinni 6.-10. júní

Æfingabúðir Ágústs Björgvinssonar í Vodafonehöllinni 6.-10. júní

 
Hinar geysivinsælu æfingabúðir Ágústs Björgvinssonar nýráðins meistaraflokksþjálfara kvenna hjá Val, fara fram í Vodafonehöllinni Hlíðarenda dagana 6. júní – 10. júní næstkomandi. Búðirnar eru hugsaðar fyrir áhugasama körfuboltastráka og stelpur á aldrinum 12 til 18 ára.
Æfingabúðirnar hafa verið haldnar frá árinu 2001 og eru því 10 ára í ár. Á þessum 10 árum hafa yfir eittþúsund leikmenn sótt búðirnar. Metþátttaka var júní 2008 þegar rúmlega 140 leikmenn sóttu búðirnar sem voru haldnar í DHL-höll KR-inga.
 
Vodafonehöllin er eitt glæsilegasta íþróttahús landsins og aðstaðan eins og best verður á kosið, en alls eru 22 körfur í húsinu og því möguleiki á að spila á 6 völlum í einu.
 
Ágúst hefur mikla reynslu af Körfuboltabúðum sem þessum en meðal búða sem hann hefur þjálfað eru í Duke University og Five Star Basketball Camp í Bandaríkjunum. Undanfarin ár hafa margir af færustu þjálfurum landsins þjálfað í búðunum og verður engin undantekning á því í ár. Sævaldur Bjarnason, þjálfari mfl. karla hjá Breiðablik, Snorri Örn Arnaldsson, landsliðsþjálfari U15 ka. Hörður Axel Vilhjálmsson meistaraflokksleikmaður Keflavíkur. Lýður Vignisson yfirþjálfari yngri flokka Vals. Hjalti Vilhjálmsson yfirþjálfari yngri flokka hjá Fjölni. Stefán Arnarson fyrrum unglingalandsliðsþjálfari. Bára Hálfdanardóttir þjálfari hjá Stjörnunni og Oddur Benediktsson mfl. þjálfari kvenna Laugarvatni. Þá mun Pavel Ermolinskij besti leikmaður Iceland Express deildar karl einnig þjálfa við búðirnar. Aðrir þjálfarar verða kynntir til sögunnar þegar nær dregur.
 
Þeir krakkar sem taka þátt fá tækifæri til þess að njóta handleiðslu mjög hæfra þjálfara sem munu aðstoða krakkana þessa fjóra daga sem búðirnar fara fram. Körfuboltabúðirnar eru á milli kl 17.00 og 20.30 frá mánudeginum 6. júní til föstudags 10. júní og verðið er einungis 6.500 krónur. Frá klukkan 16.00 til 17.00 gefst leikmönnum færi á að hitta þjálfara og vinna í einstaklingsatriðum.
 
Körfuboltabúðir Ágústs Björgvinssonar 2011:
 
Frá 6. júní til 10. júní 17.00-20.30
12 til 18 ára stelpur og strákar
Verð 6.500 krónur
 
Skráning og upplýsingar á [email protected]  
 
Frekari upplýsingar veita: Sævaldur Bjarnason 893-8052 og Ágúst Björgvinsson 696-9387
Fréttir
- Auglýsing -