Mikið hefur verið og er að fara gerast hjá landsliði okkar íslendinga þetta árið. Fyrst voru það Smáþjóðaleikarnir, sem voru hér heima í byrjun júní. Þar sem að liðið náði öðru sæti. Næst er það hinsvegar lokamót Eurobasket í Berlín nú í september. Við það tilefni fannst okkur kjörið að hafa uppi á nokkrum fyrrum landsliðsmönnum Íslands og fá að spyrja þá að nokkrum spurningum.
Næstur er það KR-ingurinn Einar Bollason, en hann spilaði eina 35 landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 1964-1978.
Nafn:
Einar Gunnar Bollason
Félagslið / tímabil:
ÍR í 3. Fl., keppti einnig með 2. og M.fl 1958 – 1960. Sleit þá krossband í hné og missti úr 1 vetur. Gékk þá yfir í nýstofnaða körfuknattleiksdeild K.R. og fylgdi þar með í fótspor flestra af mínum vinum sem flestallir höfðu verið í ÍR áður. Lék með Þór á Akureyri í 2 ár sem spilandi þjálfari 1968 – 1970 en fór þá aftur í KR. Lék minn síðasta leik með KR í úrslitum Ísl. mótsins 1979 þar sem við unnum Val í mögnuðum leik fyrir framan troðfulla höll. Þetta er enn áhorfendamet á íslenskan körfubolta.
Kom inn á í nokkrum leikjum með Haukum veturinn þegar útlendingar voru bannaðir (man ekki árið ?) en ég þjálfaði þá í 4 ár. Þeir urðu 2 svar bikarmeistarar og árið eftir Íslandsmeistarar!
Ég lauk svo ferlinum með FH í 2. deild þá tæplega fimmtugur en við kennarar í Hafnarfirði stofnuðum deildina sem því miður lifði bara í 1-2 ár.
Landsliðsferill:
Ég lék alla landsleiki á árunum 1964 – 72 en þeir urðu því miður aðeins rúmlega 30 á 8 árum !!!
Ég varð að hætta v/ veikinda haustið 1972 en byrjaði aftur eins og fyrr segir og spilaði þá aftur nokkra leiki
Hvernig var tilfinningin að vera valinn í landslið fyrst?
Hún var alveg stórkostleg og það var á Polar Cup í Finnlandi
Hvernig var fyrsti leikur þinn fyrir Ísland?
Man ekki mikið eftir honum og hef sjálfsagt ekki komið mikið við sögu en það átti eftir að breytast !!!
Var móðir þín viðstödd viðureignina?
Nei hún sá mig aldrei spila !
Hver var eftirminnilegasti leikurinn sem þú lékst fyrir Ísland?
Þeir eru nú nokkrir en ætli fyrsti sigurleikur okkar í EM sem var á móti Dönum á EM í Svíþjóð sé ekki sá sem stendur upp úr, einnig nokkrir á móti Svíum en þar átti ég oft í höggi við erfiða miðherja Svía sem þó gaman var að kljást við þótt þeir væru 10 – 12 cm hærri !!!!
Það hefði verið gaman að fást við leikmann eins og Hlyn en auðvitað enn skemmtilegra að hafa hann með sér í liði ! Frábær leikmaður sem ég held mikið upp á.
Hver var sá besti leikmaður sem þú spilaðir með fyrir landsliðið og afhverju?
Það er auðvitað einn sem stendur upp úr og það er Þorsteinn Hallgrímsson ÍR en hann var yfirburðamaður á sínum tíma og var m.a. valinn í Evrópuúrval eftir Polar Cup 1964. Siðan koma félagar mínir hjá KR, Kolbeinn Pálsson sem var valinn íþróttamaður ársins 1966 eftir að hafa tryggt okkur sigur á Dönum með 2 vítaskotum var ótrúlega fljótur og harður varnarmaður sem einnig skoraði mikið, Gunnar Gunnarsson sem var leikstjórnandi af Guðsnáð og Kristinn Stefánsson sem var ótrúlegur frákastari á móti mikið hærri mönnum. Seinna meir kom svo Jón Sigurðsson Ármanni og KR, frábær körfuboltamaður sem ég set í flokk með Þorsteini og Jóni Arnóri sem bestu leikmenn allra tíma ásamt auðvitað Pétri Guðmundssyni.
Hversu ánægður varðst þú við það að fylgjast með landsliðinu tryggja sér sæti á sínu fyrstu lokum stórmóts?
Alveg í skýjunum auðvitað
Afhverju heldur þú að það hafi loksins tekist fyrir liðið að tryggja sér seðilinn á lokamót?
Margir samverkandi þættir eins og góð stjórn KKÍ, góður þjálfari og allt í kringum liðið mjög jákvætt en mestu máli skiptir auðvitað að nú hafa allir okkar bestu menn leikið erlendis sem atvinnumenn og held ég að þarna sé mesti munurinn
Hvernig heldur þú að Íslandi eigi eftir að vegna í þessum sterka riðli sem þeir í drógust?
Þetta er erfiður riðill og ef við vinnum 1 leik þá er það frábært en allt getur þó gerst !!
Ef þú fengir að senda einn fyrrum leikmann Íslands með liðinu á Evrópumótið, hver væri það þá og hvernig myndi hann hjálpa liðinu?
Engin spurning, auðvitað Pétur Guðmundsson sem myndi gjörbreyta öllu liðinu.
Hvert telur þú vera, fengir þú að velja lið allra tíma, byrjunarliðs uppstilling íslenska landsliðsins?
Ég ætla að velja 7 : Pétur, Hlynur, Haukur, Jón Arnór, Pavel, Jón Sigurðsson og Þorsteinn Hallgrímsson.
Heldur þú, að þú sjálfur sem leikmaður, upp á þitt besta, værir á leið með íslenska liðinu til Berlín næsta vor?
Því verða aðrir að svara!!
Hver væri þín helsta samkeppni og myndir þú taka hann/þá?
Vil ekki nefna neinn en já engin spurning !!!!
Hvaða ungi leikmaður, sem ekki hefur spilað áður fyrir landsliðið, myndir þú veðja á að ætti eftir að spila yfir 50 landsleiki í framtíðinni?
Ég myndi veðja á unga manninn frá Haukum sem var valinn í hópinn núna
Hverja telur þú tvo mikilvægustu leikmenn íslenska liðsins í dag og afhverju?
Þeir eru 3 að mínu viti: Hlynur, Jón Arnór og Haukur og allir vita afhverju. Síðan koma Pavel og Hörður sem hefur sótt sig mjög, Logi getur gert ótrúlega hluti og ég vona að Helgi komist með sem og Brynjar.
Á að bregða landi undir fót og fylgja liðinu til Berlín?
Að sjálfsögðu förum við allir þessir gömlu fauskar og öskrum okkur hása !!!
Fyrri viðmælendur:Pétur GuðmundssonGuðjón SkúlasonGuðmundur Bragason




