Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson og samherjar hans í Alba Berlín knúðu fram úrslitaleik um þýska meistaratitilinn í körfuknattleik eftir að hafa lagt deildarmeistara Bayern München að velli, 71:61, í kvöld.
Einvígið er nú hnífjafnt, 2:2, og því ljóst að úrslitaleikurinn í München á sunnudaginn mun ráða því hvort liðið fagnar titlinum. Martin var á gólfinu í 22 mínútur þar sem hann skilaði fjórum stigum, tveimur fráköstum og fjórum stoðsendingum.




