Verðlaunahátíð KKÍ fór fram nú í hádeginu þar sem bestu leikmenn og þjálfarar 2023-24 tímabilsins voru heiðraðir. Kosið er af þjálfurum, fyrirliðum og formönnum deildanna eftir að deildarkeppni lýkur, en tekið er fram að þá er úrslitakeppnin að sjálfsögðu ekki inni í myndinni hjá þeim er kjósa.
Hér fyrir neðan má sjá hverjir hlutu verðlaun í Subway deild karla.
| Subway deild karla | ||
| Prúðasti leikmaðurinn | Haukur Helgi Pálsson | Álftanes |
| Erlendur leikmaður ársins | Remy Martin | Keflavík |
| Þjálfari ársins | Benedikt Guðmundsson | Njarðvík |
| Úrvalslið | Ægir Þór Steinarsson | Stjarnan |
| Úrvalslið | Þórir Guðmundur Þorbjarnarson | Tindastóll |
| Úrvalslið | Kristinn Pálsson | Valur |
| Úrvalslið | Tómas Valur Þrastarson | Þór Þ. |
| Úrvalslið | Kristófer Acox | Valur |
| Ungi leikmaður ársins | Tómas Valur Þrastarson | Þór Þ. |
| Varnarmaður ársins | Sigurður Pétursson | Keflavík |
| Leikmaður ársins | Kristinn Pálsson | Valur |



