spot_img
HomeFréttirNorðurlandamót unglinga hefst á morgun

Norðurlandamót unglinga hefst á morgun

14:10 

{mosimage}

Norðurlandamót unglinga hefst á morgun í Svíþjóð. Mótið er haldið í bænum Solna, sem er nálægt Stokkhólmi. Körfuknattleikssamband Íslands sendir alls 65 manns á mótið í ár. Frá þessu er greint á www.kki.is  

Alls halda fjögur lið til keppni á morgun en það eru U18 ára og U16 ára lið karla og kvenna. Hópurinn skiptist í 48 leikmenn, 4 þjálfara, 2 aðstoðarmenn, 2 sjúkraþjálfara, 5 fararstjóra og 4 dómara. Það er því 65 manna hópur sem fer til Svíþjóðar í ár.

Liðin hefja keppni strax á morgun morgun og leikið verður fram á sunnudag. Heimasíðan mun birta kynningu á liðunum í dag og á morgun.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -