HomeFréttirNBA: Yao Ming meiddur

NBA: Yao Ming meiddur

22:45
{mosimage}
(Yao Ming er frá út tímabilið)

Svo virðist vera að miðherji Houston Rockets, Yao Ming, verði frá út tímabilið en hann er meiddur á vinstri fæti.
Er þetta mikið áfall fyrir Houston en það hefur verið á miklu skriði og unnið 12 leiki í röð og situr sem stendur í 7. sæti Vesturstrandarinnar.


Yao hefur átt mjög gott tímabil skorað 22 stig að meðaltali og tekið 10.8 fráköst í leik. Ef hann velur að fara í aðgerð fylgir það henni skrúfa saman beinið til að halda því saman en aðferðin er bara gamla góða gipsið og hækjurnar. Báðum þessum aðferðum fylgir margra mánuða bati.

Það er óvíst hvenær Ming verður leikfær en ekki er búist við að hann missi af Ólympíuleikunum í sumar en þeir eru haldnir í heimalandi risans Peking.

Mynd: AP

Emil Örn Sigurðarson – [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -