13:29
{mosimage}
(Marel er leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar karla frá upphafi)
Marel Guðlaugsson, annar fyrirliði 1. deildar liðs Hauka, segir í viðtali á heimasíðu Hauka að liðið hafi örlög sín í hendi sér. Liðið eigi ágætis möguleika á að komast í úrslitakeppnina en Haukar mæta KFÍ í kvöld á Ísafirði í leik sem Marel segir að sé úrslitaleikur. Haukar hafa leikið án erlends atvinnumanns í vetur og Marel segir að það hafi verið góð ákvörðun hjá Haukum að gera það.
{mosimage}
(Marel í leik gegn Reyni Sandgerði fyrr í vetur)
Marel sem er leikjahæsti leikmaður úrvalsdeildar karla frá upphafi hefur farið fyrir liði Hauka í vetur en liðið missti marga leikmenn eftir síðasta tímabil þegar þeir féllu úr Iceland Express-deildinni. Marel var um áramót stigahæsti og frákastahæsti Íslendingurinn í 1. deild. Hann skorar 13.6 stig í leik nú og er með stigahæstu leikmönnum 1. deildar.
Hægt er að lesa allt viðtalið hér.
Myndir: [email protected]



